Húsnæðisskortur leiðir ekki til aðkomu barnaverndar
„Húsnæðisskortur einn og sér leiðir ekki til aðkomu barnaverndar eða til þess að mál verði barnaverndarmál,“ segir Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar, í pistli sínum á vef Reykjanesbæjar. Töluverð umræða hefur verið á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum um húsnæðisvanda fólks á svæðinu og aðkomu barnaverndar í þeim málum.
Aðkoma barnaverndar í málum barna byggir á barnaverndarlögum og berist tilkynning um að aðbúnaði og umönnun barns sé ábótavant ber barnavernd skylda til að hefja könnun máls. „Það eru svo margar og misjafnar ástæður fyrir því að fólk er í húsnæðisvanda en óhætt er að fullyrða að þær eru í fæstum tilvikum til komnar vegna vanrækslu foreldra,“ segir Hera.
Telji barnavernd að þörf sé á stuðningi við viðkomandi barn og fjölskyldu þess er reglan sú að stuðningurinn sé barninu fyrir bestur. Vistun barns utan heimilis kann að koma til álita en er ekki fyrsti kostur í þeirri vegferð. Sé niðurstaðan sú að ekki sé ástæða til aðgerða á grundvelli Barnaverndarlaga að lokinni könnun, þá er málinu lokað hjá barnavernd.
Hera segir það reynslu velferðarráðs að foreldrar finni leið til að gæta hagsmuna barna sinna og veita þeim það öryggi sem þau þurfa. Sú leið sé oft fundin í gegnum tengslanet fjölskyldunnar en að hún geti líka falist í því að foreldrar kaupi gistingu á gistiheimili, AirB&B, leigi herbergi og búi tímabundið við þröngar aðstæður.
Samkvæmt lögum er það hlutverk sveitarfélaga að aðstoða íbúa sem eru tekjulágir eða með þunga framfærslubyrgði í gegnum félagslega húsnæðiskerfið og segir Hera sveitarfélagið nokkuð vel sett með íbúðafjölda í félagslega kerfinu í samanburði við önnur sveitarfélög, þó biðlistinn sé langur. „Íbúar sem leita til félagsþjónustu sveitarfélaga vegna húsnæðismála sinna fá ráðgjöf við húsnæðisleit, upplýsingar um ýmis stuðningsúrræði fyrir tekjulægstu hópana, m.a. sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins og lán til fyrirframgreiðslu húsnæðis. Félagsþjónusta sveitarfélagsins reynir eftir bestu getu að koma til móts við fólk í þessari erfiðu stöðu, m.a. með því að auðvelda þeim þannig aðgengi að almenna leigumarkaðinum.“
Barnafólk sem leitar að eigin frumkvæði til barnaverndar vegna húsnæðisvanda síns er bent á að snúa sér til félagsþjónustu sveitarfélaga. Úthlutun félagslegs húsnæðis er verkefni velferðarsviðs Reykjanesbæjar og félagslegt húsnæði í Reykjanesbæ er rekið af Fasteignum Reykjanesbæjar ehf.