HÚSNÆÐI ÖLDUNNAR BOÐIÐ TIL KAUPS
Bæjarráði Sandgerðisbæjar barst erindi frá versluninni Öldunni í nóvember sl. þar sem eigendur vildu athuga hvort Sandgerðisbær hefði áhuga á að kaupa húsnæði Öldunnar að Tjarnargötu 6, en húsið er rúmlega 300 fermetra steinhús. Samkvæmt bókun bæjarráðs kemur fram í erindinu að ætlunin sé að leggja verslunina niður vegna síversnandi afkomu.