Bygg
Bygg

Fréttir

Húsnæði að Seljabót 7 tekið í gegn
Fimmtudagur 28. júlí 2005 kl. 15:00

Húsnæði að Seljabót 7 tekið í gegn

Húsnæðið að Seljabót 7, Grindavík hefur nú tekið algerum stakkaskiptum eftir að það var tekið í gegn. Húsið var byggt árið 1970 af Fiskimjöl og Lýsi sem geymsluhúsnæði og þjónaði sem slíkt fram til ársins 1998 þegar GLP h/f keypti húsið, m.a hafði Síldarútvegsnefnd húsið á leigu í mörg ár sem geymslu fyrir tunnur þegar síld var söltuð í hverju verkunarhúsi á haustin. Einnig voru geymd veiðarfæri fyrir nótaskip.

Stakkavík h/f eignast húsið 2003 og hefur unnið að endurbótum síðan og er þeim að mestu lokið. Húsið var í alla staði óhrjálegt, ópússað að utan sem innan og gluggalaust. Það er nú hið glæsilegasta og sómi að. Í húsinu eru nú starfandi tvö fyrirtæki að auki, Geoplank ehf hefur alla efri hæðina til afnota en þar er harðviðarþurrkun og fullvinnsla og á neðri hæðinni er Rafþjónusta Birgis með aðstöðu. Restina af húsinu nýta Stakkavíkurmenn sem  veiðarfæraþjónustu fyrir fyrirtækið.

Kemur þetta fram á vefsíðu Grindavíkur

Bílakjarninn
Bílakjarninn