HSS
HSS

Fréttir

„Húsið á sléttunni“ fær 40% afslátt
Þriðjudagur 22. nóvember 2011 kl. 09:54

„Húsið á sléttunni“ fær 40% afslátt

Bæjaryfirvöld í Garði hafa samþykkt að veita húsbyggjendum við Brimklöpp 8 í Garði 40% afslátt vegna uppreiknaðra gatna- og byggingarleyfisgjalda. Brimklöpp 8 er eina húsið sem er risið í nýju hverfi þar sem skipulagðar voru 199 byggingalóðir í Garði skömmu fyrir hrun. Það er því eyðilegt um að litast í nýja hverfinu þar sem húsið stendur eitt á sléttunni ofan við Garðvang í Garði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Í bréfi frá húseigendum við Brimklöpp 8, dags 23. okt. sl. er óskað eftir afslætti gatna- og byggingaleyfisgjalda þar sem uppbygging hverfisins mun ekki standast.


Bæjarráð Garðs tekur undir með bréfritara að ljóst er að upphaflegar áætlanir um uppbyggingu Teigahverfis mun ekki standast. Ekki er á áætlun að leggja bundið slitlag eða gangstéttar við Brimklöpp eða aðrar götur í hverfinu á næstu árum.


Þar sem sambærileg staða hefur komið upp í öðrum sveitarfélögum eru forsendur fyrir því að sveitarfélög gefi húsbyggjendum afslátt frá gatnagerðar- og byggingaleyfisgjöldum. Það er einnig heimilt samkvæmt lögum um gatnagerðargjöld nr. 253 frá árinu 15. desember 2006, en þar segir m.a.;


„Sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður svo sem vegna þéttingu byggðar, atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði.“


Bæjarráð samþykkir því að veita húsbyggendum við Brimklöpp 8, 40% afslátt vegna uppreiknaðra gatna- og byggingarleyfisgjalda.



Brimklöpp 8 í Garði er eina húsið sem byggt hefur verið í hverfi þar sem gert var ráð fyrir 199 byggingalóðum. VF-myndir: Hilmar Bragi