Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Húshumlan klikkar ekki
Mánudagur 28. apríl 2008 kl. 15:56

Húshumlan klikkar ekki

Fáir vorboðar eru eins stundvísir og húshumlan. Jafnan hefur mátt stilla dagatalið eftir því hvenær hún birtist á vorin, en dagurinn sá er 19. apríl. Nú brá hins vegar svo við að húshumlan færði sig fram um einn dag og vaknaði af vetrarsvefninum 18. apríl víða um sunnanvert landið. Var hún að þjófstarta að þessu sinni? Nei, ekki aldeilis. Nú er hlaupár og húshumlan hefur augljóslega tekið tillit til þess og því fært sig fram um einn dag á dagatalinu! Stundvísari gat hún því alls ekki verið.

Húshumlan er sannur vorboði og eru flestir nú farnir að taka henni fagnandi sem slíkum. Áður fyrr stóð mörgum stuggur af þessum bústna og pattaralega röndótta landnema sem var talinn gera sig kláran til hryðjuverka þegar hann kom aðvífandi á þyngslalegu flugi. En nú hafa flestir áttað sig á að hér fer ljúflingur sem prýðir og lífgar upp á garða okkar og blómabeð. Vissulega hefur hann vopn til að verja sig ef að honum er vegið, en því beitir hann eingöngu í ýtrustu neyð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Af vef Nátturufræðistofnunar Íslands, www.ni.is

Mynd/Ellert Grétarsson: Stundvísi vorboðinn.