Hús flutt sjóleiðis
Varðskipið Týr flutti í dag hús, sem vélsmiðjan Eldafl byggði fyrir Landhelgisgæsluna, frá Keflavíkurhöfn að Faxakambi í Reykjavík.Húsið var híft um borð um tíuleytið í morgun með stóreflis krana og gekk allt að óskum þrátt fyrir leiðinda slagviðrisrigningu.
Ferðin gekk ljómandi vel fyrir sig og var húsinu slakað niður á Faxakamb um hálf þrjú leytið í dag, en þar mun húsið standa framvegis.
Húsið er einingahús af svipaðri gerð og Eldafl hefur gert fyrir Orkuveituna og Víkurfréttir fjölluðu um ekki alls fyrir löngu.




