HSS
HSS

Fréttir

Hundurinn veiktist eftir að hafa japlað á kannabis
Tinna er hundur Eríks og Oddnýjar Harðardóttur alþingiskonu.
Miðvikudagur 23. mars 2016 kl. 11:30

Hundurinn veiktist eftir að hafa japlað á kannabis

Plönturnar við gamla Rockville svæðið

Keflvíkingurinn Eiríkur Hermannsson birti áhrifamikinn pistil á Facebooksíðu sinni þar sem hann segir frá veikindum tíkarinnar Tinnu. Eiríkur var ásamt hundinum á göngu við gamla Rockville svæðið þar sem tíkin fann pottaplöntu sem hún japlaði á um stund. Eftir að heim var komið var tíkin mjög veik og ljóst að hún hafði orðið fyrir eins konar eitrun. Í ljós kom að plantan sem hundurinn smakkaði á var kannabisplanta. Pistil Eiríks má lesa hér að neðan.


Hún Tinna okkar er veik. Undanfarin tvö ár hefur þessi kröftuga og fjöruga Labradortík verið mér við hlið, hvort sem ég sit við störf eða geng mér til hressingar. Á mánudag fórum við á gamla Rockville svæðið þar sem Tinna naut þess að skokka frjáls. Við lékum okkur smá stund en svo fann hún eitthvað sem fangaði athyglina, leifar af pottablómi sem einhver hafði losað sig við skammt frá veginum. Þetta bar hún í kjaftinum í þrjár-fjórar mínútur í humátt á eftir mér og japlaði á fengnum. Mér fannst það ekkert athugavert. Labradorar smakka á öllu sem þeir finna, sérstaklega ef það lyktar. Það er einfaldlega eðlið. Svo missti hún áhugann á þessu fljótlega í skiptum fyrir pylsubita. Og við fórum heim.

Skömmu síðar sá ég að henni leið illa og um kvöldið var hún orðin fárveik. Hringt var á neyðarvakt dýralækna og staðan metin. Tinna var lögð inn daginn eftir á Dýralæknastofu Suðurnesja og er nú í þeirra höndum. Hún hefur orðið fyrir eitrun og er augljóslega mikið veik. Hún hefur ekkert etið né drukkið, en fær vökva í æð og virkar hrædd við allt og alla. Hugsanlega hafa nýru eða lifur skemmst. Það er ekki vitað enn. Við bíðum á milli vonar og ótta. Lögreglan fór í gær og hirti upp „blómaleifarnar“ eftir ábendingu mína. Þarna voru ca. 12-14 cannabisrætur og slatti af laufum. Þetta er greinilega stórhættulegt fyrir hunda. Jafnvel 35 kílóa orkubolta sem aldrei verður misdægurt.

Bílakjarninn
Bílakjarninn