Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Hundur réðst að manni og hundi
Föstudagur 1. febrúar 2013 kl. 13:47

Hundur réðst að manni og hundi

Lögreglunni á Suðurnesjum var nýverið tilkynnt um að Schäfer- hundur hefði ráðist að manni og smáhund hans þar sem þeir voru á göngu. Maðurinn tók smáhundinn í fangið og hraðaði sér heim. Schäfer-hundurinn elti. Stóð hann í dyrum mannsins þegar hann hringdi á lögreglu. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var hundurinn kominn heim til sín, lá þar í dyragættinni og fylgdist vel með allri umferð fram hjá húsinu. Hann hafði opnað útidyrahurð, sem var ólæst, og komist þannig út. Málið var tilkynnt til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

Þá tilkynnti dagmóðir að Husky-hundur væri hlaupandi laus í hverfinu og inn á lóð hjá sér þar sem börn væru sofandi í barnavögnum. Örfáum mínútum síðar hringdi konan aftur og var þá hundurinn kominn inn í forstofu hjá henni. Lögregla hafði þá þegar sent hundafangara af staðinn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lögreglan minnir er á að lausaganga hunda er með öllu óheimil.