Hundur glefsaði í barn
Lögreglunni á Suðurnesjum barst á föstudag tilkynning þess efnis að hundur hefði glefsað í átta ára dreng. Drengurinn var að bíða eftir að vera sóttur í skóla og beið hann fyrir utan skólabygginguna þegar atvikið átti sér stað. Hundurinn kom aðvífandi og gerði sig líklegan til að bíta barnið. Hann glefsaði í úlpu þess, en lét þar við sitja. Lögregla gerði Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kunnugt um málið.
Þá var tilkynnt um ólarlausan Husky-hund sem væri að þvælast inni í garði við íbúðarhúsnæði. Lögregla hafði samband við hundafangara sem fór á staðinn.
Lögregla áréttar enn og aftur að lausaganga hunda er með öllu óheimil og að af henni getur stafað hætta eins og dæmin hafa sannað.