HSS
HSS

Fréttir

Hundruð í skjaldborg um álver í Helguvík
Fimmtudagur 23. apríl 2009 kl. 14:30

Hundruð í skjaldborg um álver í Helguvík

Hundruð manna og kvenna mætti í Helguvík í hádeginu til að slá skjaldborg um byggingu álvers í Helguvík. Hópurinn samanstóð af fólki víðsvegar að af Suðurnesjum og víðar sem lætur sig byggingu álvers varða. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ ávarpaði hópinn sem síðan stillti sér upp í hópmyndatöku við hliðið að álverslóðinni. Einnig myndaði fólkið keðju meðfram girðingu álverslóðarinnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í vefsjónvarp Víkurfrétta eru komnar myndir frá gjörningnum við álverið. Það er ávarp Árna Sigfússonar sem hljómar undir myndunum í vefsjónvarpinu.