Hundeigendur í hár saman við hesthús
Lögreglunni á Suðurnesjum var í gær tilkynnt um tvo hundeigendur sem ættu í deilum við hesthúsahverfi í umdæminu eftir að hundum þeirra hefði lent saman. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var þar fyrir annar hundeigendanna, sem bar hinum illa söguna. Kvaðst hann hafa verið á gangi með hund sinn þegar annar hundur hefði komið aðvífandi og ráðist á hann.
Eigandi árásarhundsins hefði verið í akstri á bifreið sinni og látið sinn hund hlaupa lausan með þegar atvikið átti sér stað. Maðurinn kvaðst hafa átalið þetta athæfi en sá sem bílnum ók svarað illu einu til. Lögreglan hafði upp á hinum síðarnefnda og gerði honum grein fyrir því að ólíðandi væri að hundur hans gengi laus og réðist á aðra hunda. Hann lofaði bót og betrun.