HSS
HSS

Fréttir

Hundarnir aflífaðir
Mánudagur 20. júní 2011 kl. 10:43

Hundarnir aflífaðir

Hundarnir sem réðust á Guðrúnu Guðmundsdóttur á Miðnesheiði í lok síðasta mánaðar voru aflífaðir fyrir helgi hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, ásamt fleiri hundum sem voru í umsjá eiganda þeirra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Hópur 17 hunda réðst að Guðrúnu þann 31. maí síðastliðinn þar sem hún var við eggjatínslu á svæðinu við Rockville á Miðnesheiði. Hún hlaut allmörg bitsár og kærði eiganda hundanna til lögreglu. Á þeim tíma átti eigandinn, sem er kona, að minnsta kosti 24 hunda og fjóra ketti, að því fram kemur á vef Vísis.


Dýrin þóttu alltof mörg til þess að ein manneskja gæti sinnt þeim, en þau voru mörg hver mjög illa farin. Eigandinn féllst því á að láta lóga öllum hundunum að tveimur undanskildum. Héraðsdýralækni og lögreglu hafa borist allmargar kvartanir vegna dýrahalds konunnar og meðferðar hennar á þeim, segir jafnframt á Vísi.