Fimmtudagur 10. febrúar 2000 kl. 15:54
Hundar finna hass á farþega
42 ára karlmaður var handtekinn á mánudaginn með 300 gr. af hassi í Leifsstöð. Maðurinn var að koma frá Kaupmannahöfn og viðurkenndi að eiga efnin. Hann hefur komið áður við sögu fíkniefnamála, en ekki verið viðriðinn innflutning fíkniefna.