Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Fimmtudagur 13. júlí 2000 kl. 10:34

Hundar eru aðaláhugamálið

Shäffer hundar eru þeirra líf og yndir, og nýlega eignuðust þau 10 fallega hvolpa. Sara Halldórsdóttir og Þorvaldur Steinsson, búa í Vogunum ásamt börnum sínum, tíkinni Fixsjóns-Vilju og hundinum Axel frá Kirkjubrú. Hundaræktun og -þjálfun er þeirra líf og yndi en undanfarin ár hafa þau verið virk í Björgunarhundasveit Íslands og sl. tvö ár hafa þau einnig starfað með Björgunarsveitinni Suðurnes. Þau fluttu frá Hnífsdal en segjast nú vera sest að í Vogunum, þar sem þau una hag sínum vel. Góðir fjölskylduhundar Þorvaldur hefur átt Schäffer hunda undanfarin 12 ár og segir þá tegund höfða sérlega vel til sín, þar sem þeir hafa mikla aðlögunarhæfni, eru góðir fjölskyldu- og vinnuhundar, en þeir hafa einnig verið vinsælir hjá lögreglu, björgunarsveitum og sem blindrahundar, svo eitthvað sé nefnt. „Þeir eru alls ekki grimmir eins og margir halda. Ef þeir væru það þá væru þeir örugglega ekki vinsælasta hundategund í heimi. Þeir hafa mikið jafnaðargeð og vel ræktaður Schäffer-hundur er eitthvað það skemmtilegasta hundakyn sem völ er á. Hingað til lands hafa aðallega verið fluttir inn sýningarræktaðir Schäffer-hundar, en okkur fannst kominn tími til að fá inn hunda úr vinnuhundaræktun“, segir Þorvaldur en tíkina Vilju, sem gaut 10 hvolpum 22. maí sl., fluttu hjónin inn frá Svíðþjóð á síðasta ári. Hún er einstaklega geðgóð og skemmtileg tík og er til þjálfunar sem sporhundur. Grái liturinn eftirsóttur Sara og Þorvaldur eru nýbyrjuð að rækta hunda og gotið nú í maí er fyrsta ættbókarfærða gotið þeirra. Þorvaldur segir að það sé mjög mikilvægt að læra að þekkja það hundakyn sem ætlunin er að rækta, eiginleika, kosti og galla áður en farið er af stað með ræktun. Foreldrar litlu Schäffer hvolpanna eru bæði af góðu kyni, þ.e. Fixsjóns-Vilja og Ísafoldar-Fönix. Hvolparnir í Vogunum fá hins vegar ættarnafnið „Gráfelds“. Hvers vegna völduð þið þetta nafn, Gráfelds? „Við erum að reyna að ná fram sable-lit, eða grásprengdum feldi, sem má segja að sé upprunalegi litur á þessari hundategund. Hingað til hefur svartur/gulur og svartur/rauður verið ráðandi á Íslandi. Nafnið Gráfelds fannst okkur liggja svo vel við með tilliti til þess litar sem við erum að reyna að ná fram, en auðvitað er liturinn ekki aðalmálið í ræktunini“, segir Sara. Hvolparnir eru hver öðrum fallegri en þau eru þegar búin að lofa sex þeirra, einum ætla þau að halda og einn dó í fæðingu. Þurfa stífan og velviljaðan aga Hundar eru eins og mannfólkið, með ólíka skapgerð, en til að fá skemmtilegan fjölskylduhund, þarf að leggja töluverða vinnu í þjálfun og umönnun hvolpanna. Sara og Þorvaldur segja mikilvægt að leyfa hvolpinum að venjast ókunnugum, börnum, heimilishljóðum og öðrum þeim hljóðum og truflunum sem hvolpurinn á eftir að umgangast í sínu daglega lífi þegar fram í sækir. Ekki er heldur ráðlegt að skilja þá eina eftir í margar klukkustundir, þegar þeir eru litlir því þá er hætta á að þeir skemmi húsbúnað, væli og valdi ónæði. „Við erum alltaf með tvo hvolpa inni hjá okkur í einu yfir daginn, en hinir eru úti í garði. Þannig venjast þeir venjulegu heimilislífi og ókunnugir verða engin ógn í þeirra augum, heldur fá þeir að upplifa ókunnuga á jákvæðan hátt. Þeir eru vinnuhundar í eðli sínu og þurfa að hafa hlutverk og stífan en velviljaðan aga. Þess vegna er mikilvægt að eigendur þeirra fari með þá í þjálfun, t.d hlýðniæfingar, hundafimi og sporaþjálfun. Á nóttunni fá þeir allir að sofa inni í húsinu hjá okkur", segir Sara og sýnir blaðamanni rúmgott forstofuherbergi sem hefur verið sérstaklega innréttað fyrir hundana. Skemmtilegt áhugamál Þurfa Schäffer hundar mikla hreyfingu? „Þeir geta sætt sig við litla hreyfingu, en nauðsynlegt er að þeir fái daglega hreyfingu“, svarar Þorvaldur að bragði. Sara og Þorvaldur fara daglega út með hundana og þá helst uppá Stapa eða út á Vatnsleysuströnd. Hundarnir eru sprettharðir svo það þýðir ekkert fyrir þau að ætla að hlaupa á eftir þeim, heldur draga hundarnir þau á eftir sér á hjólunum. „Við förum á hverjum sunnudegi, allt árið um kring, upp í Bláfjöll eða í Heiðmörk, ásamt öðrum félögum úr Björgunarhundasveit Íslands. Þar æfum við leit í snjó á veturna en víðavangsleit á sumrin. Við sækjum líka reglulega námskeið í þjálfun hunda, rústaleit, sporarakningum o.fl., svo það má segja að þetta sé áhugamál númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur. Þetta er mikil vinna, en skemmtileg og gefur okkur mikið“, segir Þorvaldur og Sara tekur undir. Heimsíða Þorvaldar og Söru er http://www.mmedia.is/~fagradal og þar er hægt að lesa allt um Schäffer-hunda, ræktunina og skoða myndir af hundunum þeirra.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024