Hundaeigendur boðaðir á fund í Garði
- til að stuðla að gagnkvæmum skilningi umhundahald í bænum.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, boðar hundaeigendur í sveitarfélaginu til fundar næstkomandi fimmtudag kl. 18.00 í sal Gerðarskóla. Á fundinum verður fjallað um hundahald í sveitarfélaginu, farið yfir hvaða reglur gilda þar um og rætt um málefnið almennt.
Markmið með fundinum er að fá fram sjónarmið sveitarfélagsins og hundaeigenda þannig að gagnkvæmur skilningur ríki á milli aðila um þessi mál. Fulltrúar sveitarfélagsins og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja verða á fundinum og ræða við hundaeigendur um málefnið.