Bygg
Bygg

Fréttir

Humarsalan tekin við sölu og dreifingu á bláskel
Bláskel. Mynda af vefsíðuinni skel.is.
Fimmtudagur 11. desember 2014 kl. 13:23

Humarsalan tekin við sölu og dreifingu á bláskel

- fyrir Íslandsskel ehf.

Humarsalan hefur tekið við allri sölu og dreifingu á bláskel frá Íslandsskel ehf. Íslandsskel er leiðandi í ræktun á Íslenskri bláskel og eini aðilinn á Íslandi sem býður uppá lifandi bláskel allan ársins hring. Íslandsskel ræktar bláskel bæði í Faxaflóa og Hvalfirði hún er þekkt fyrir einstaklega góða holdfyllingu og bragðgæði.
 
Íslandsskel býr yfir öflugum tækjabúnaði til að tryggja bláskel bestu mögulegu lífsskilyrði, þar sem ferskum sjó er dælt í kerin sem skelin er geymd í eftir heimtingu. Þannig tryggir Íslandsskel að skelin haldist sem ferskust og best alveg þar til að henni er dreift. Starfssemin er undir ströngu eftirliti Matvælastofnunar Íslands.
 
Humarsalan mun halda úti daglegri dreifingu til veitingarhúsa og verslana á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum og notast Humarsalan við þjónustu Landflutninga og Flytjanda til að koma bláskelinni á landsbyggðina.
 
Bílakjarninn
Bílakjarninn