Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hulda blessuð
Jón Steinar Sæmundsson
Jón Steinar Sæmundsson skrifar
sunnudaginn 23. maí 2021 kl. 07:04

Hulda blessuð

Ný og glæsileg Hulda kom inn til Grindavíkur í vikunni úr sínum fyrsta róðri. Báturinn reyndist vel í alla staði í þessum fyrsta róðri að sögn skipverja, sem sögðu þó að aflinn hefði mátt vera meiri en hann var um þrjú tonn.

Þegar að Hulda lagðist að bryggju steig Sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur í Grindavík, um borð og blessaði hinn nýja bát eins og venja er þegar ný skip koma í höfn í fyrsta skipti. Að athöfn lokinni var gestum boðið upp á veitingar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hulda GK 17 er af gerðinni Cleopatra Fisherman 40BB og er 11,99 metra löng. Mælist 29,5 BT að stærð. Báturinn var hannaður hjá Ráðgarði Skiparáðgjöf í samstarfi við Trefjar ehf. og eigendur bátsins.

Eigandi og útgerðaraðili Huldu er Blakknes ehf. en að því félagi standa feðgarnir Sigurður Aðalsteinsson, Ólafur Már Sigurðsson og Gylfi Þór Sigurðsson. Heimahöfn Huldu er Sandgerði.

Texti og myndir: Jón Steinar Sæmundsson