Hugsanlegt að hraun renni í átt að Suðurnesjalínu 1
Landsneti býr sig undir nokkrar sviðsmyndir ef til eldgoss kæmi á Reykjanesskaga og hraunflæðið myndi ógna flutningskerfi rafmagns á svæðinu.
Á siðu Landsnets segir að ein sviðsmyndin geri ráð fyrir að hraun renni til norðurs og stefni á línuleið Suðurnesjalínu 1. Línan liggur sunnan megin við Reykjanesbraut frá Hafnarfirði og að Fitjum í Reykjanesbæ og er eina línan sem flytur raforku til og frá Suðurnesjum í dag.
„Landsnet starfar samkvæmt óvissustigi vegna atburðanna á Reykjanesi. Það þýðir að við fylgjumst grannt með þróun og höfum virkjað okkar viðbragð í góðu samstarfi við Almannavarnir, Veðurstofuna og orkufyrirtækin á svæðinu.
Síðustu daga höfum við farið um svæðið og metið hættuna út frá því að hraun myndi renna til norðurs. Ef sú sviðsmynd raungerist og hraun fer að renna í átt að Suðurnesjalínu 1 þá höfum við undirbúið ýmsa möguleika til að bregðast við.“
Jafnframt segir að það muni eflaust taka einhverja daga fyrir hraunið að komast að línufarveginum sem gefi tækifæri til að verja möstrin með varnargörðum, styrkja eða færa þau til.
„Við erum þegar byrjuð að hanna færslur á möstrum og að undirbúa efni, fara yfir hvað þarft af efni og búnaði, varahluti o.fl. því tengdu.
Ef Suðurnesjalínan færi út fyrirvaralaust þá tæki við svokallaður eyjarekstur sem þýðir að virkjanirnar á svæðinu, Reykjanesvirkjun og Svartsengi, geta séð svæðinu fyrir forgangsrafmagni. Því til viðbótar er Landsnet tilbúið með færanlegt varaafl sem verður flutt til Suðurnesja komi til þess að línan leysi út. Við erum viðbúin með flutningsaðilum svo hægt verði með stuttum fyrirvara að færa varaaflið inn á Reykjanesið ef til rafmagnsleysis kæmi,“ segir að lokum í tilkynningunni.
Í spilaranum hér að neðan er eldgosavakt Víkurfrétta í beinni útsendingu.