Hugmyndir um menningarverðlaun og bæjarlistamann
Bæjarráð Grindavíkur hefur tekið jákvætt í hugmyndir menningar- og bókasafnsnefndar um að að bæjarfélagið veiti árlega viðurkenningu vegna menningarstarfs í Grindavík. Þá eru einnig uppi sú hugmynd að tilnefna bæjarlistamann Grindavíkur.
Bæjarráð óskar eftir nánari útfærslu frá nefndinni vegna þessara hugmynda.
VFmynd/Frá myndlistarsýningu í Saltfisksetrinu.