Hugmyndir um húsbyggingar á grónu svæði

Umrætt svæði hefur hingað til verið lagt göngustígum almennt litið á það sem útivistarsvæði auk þess sem þar í holtinu er að finna skógræktarreit.
Ljóst er að íbúar í nágrenningu eru ekki á eitt sáttir að þrengt verði að opnu, grænu svæði með nýju byggingasvæði og hafa þegar borist erindi frá nokkrum íbúum vegna þessa. Steinþór Jónsson, formaður USK, segir að skoðanir séu skiptar á meðal íbúa, sumir séu ánægðir með hugmyndina en aðrir ekki. „Við fögnum því auðvitað menn skuli hafa hugmyndir að frekari uppbyggingu í bæjarfélaginu og erum tilbúnir að skoða þær. Hins vegar er það ljóst að allt sem viðkemur framkvæmdum í grónum hverfum kallar á mun meiri yfirferð, skoðun og samþykki þeirra sem þar búa. Við horfum ekki framhjá því í þessu máli frekar en öðrum,“ sagði Steinþór í samtali við VF.
Mynd: Hingað til hefur verið litið á holtið milli Langholts og Vatnsholts sem útivistarsvæði.