Hugmynd að framboðsfundi kastað fram

Komið þið sælir Árni og Kjartan.
Eins og við ræddum aðeins eftir fundinn okkar í Fjölbraut, er nauðsynlegt að við undirbúum sameiginlegan framboðsfund.
Að mínu viti er Stapinn heppilegastur fyrir svona fund, það er ákveðin hefð til fyrir slíkum fundum. Félagsbíó var líka stundum notað en nú er það ekki lengur fyrir hendi.
Heppilegur tími fyrir svona fund tel ég vera í vikunni fyrir Hvítasunnu þ.e. 14.-16. maí.
Auk þess þurfum við að koma okkur saman um fyrirkomulag. Ræður, ein umferð eða fleiri, fyrirspurnarform, fundarstjórn o.s.frv.
Besta formið fyrir áheyrendur sem ég man eftir var þannig að eftir stutt ávörp voru lagðar fyrir spurningar utan úr sal og fréttamenn fengnir til að leggja fram spurningar. Frambjóðendur voru hver í sínum ræðustól allan tímann og gátu því svarað og komið inn í svör hver hjá öðrum. Þannig varð umræðan lífleg og mun skemmtilegri en oft vill verða á mjög formföstum fundum. (ath. það voru ekki endilega sömu menn sem voru með ávörp og voru í að svara spurningum)
Ég vona að við getum tekið ákvörðun fljótlega og sennilega er best að við komum okkur saman um fund, t.d. með einni hjálparhellu hver til að ræða þetta. Síðan eftir að formið hefur verið gróflega ákvarðað geta aðrir séð um undirbúning fundarins.
Viljið þið nefna einhvern tíma t.d. einhvern eftirmiðdag til að hittast.
Með von um svör fljótlega
Kveðja Jóhann Geirdal“