Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

HSS: Móttaka og afgreiðsla lokuð um kvöld og nætur
Mánudagur 23. janúar 2012 kl. 16:53

HSS: Móttaka og afgreiðsla lokuð um kvöld og nætur

Frá og með 1. febrúar nk. breytist opnunartími í móttöku og afgreiðslu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Fram til þessa hefur móttakan verið opin allan sólarhringinn en frá og með 1. febrúar verður móttakan er opin alla virka daga frá kl. 07.30 – kl. 20.00. Móttakan er opin allar helgar og helgidaga frá kl. 10.00 - kl. 19.00. Áfram er tekið er á móti neyðartilfellum allan sólarhringinn.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Öll starfsemi heilsugæslunnar og sjúkrahússins er óbreytt. Vaktlæknir er í húsinu allan sólarhringinn. Einnig verður vakthjúkrunarfræðingur í húsinu til kl. 21.30 alla virka daga. Vinsamlegast hringið í 112 ef þið þurfið á læknisaðstoð að halda utan opnunartíma.

Ef um neyðartilfelli er að ræða og þið hafið ekki síma meðferðis má hringja á dyrabjöllu legudeildar/Ljósmæðravaktar við inngang elstu byggingar sjúkrahússins (A-álmu), segir í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25