HSS fær 70% lægri fjárveitingu á hvern íbúa miðað við Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga ítrekar áskorun til ráðherra heilbrigðismála frá því um miðjan júní um að tryggja íbúum á Suðurnesjum sambærilegt fjármagn til heilbrigðisþjónustu og öðrum sambærilegum þjónustusvæðum. HSS fær 70% lægri fjárveitingu en Heilbrigðisstofnun Suðurlands, miðað við framlög á hvern íbúa, að því er fram kemur í bókun bæjarstjórnar frá fundi hennar í gær.
„Á Suðurnesjum búa rúmlega 21 þúsund manns og hefur þeim fjölgað mjög mikið undanfarin ár sem eðlilega kallar á aukna þjónustu. Auk þess er á Suðurnesjum eini alþjóðaflugvöllur landsins sem leggur miklar skyldur á herðar samfélaginu á Suðurnesjum, ekki síst HSS, komi til óhappa tengdum flugi.
Í fjárlögum ársins 2009 er gert ráð fyrir að HSS fái um 70% lægri fjárveitingu til heilsugæsluþjónustu en Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi sé miðað við framlög á hvern íbúa. Nú stendur til að loka heilsugæsluseljum í Vogum, Sandgerði og Garði í hagræðingarskyni og senda um 4.500 íbúa þeirra sveitarfélaga á heilsugæslustöðina í Reykjanesbæ sem nú þegar er aðþrengd.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga treystir því að heilbrigðisráðherra muni tryggja að heilbrigðisþjónusta við íbúa í Vogum verði sambærileg við þjónustu í öðrum 1.230 manna sveitarfélögum á landinu,“ segir ennfremur í bókuninni.
VFmynd/pket - Frá HSS.