HSS: 1300 undirskriftir þegar komnar
Nú þegar hafa 1300 einstaklingar á öllum aldri skráð sig á undirskriftalistann hér á vf.is þar sem fyrirhuguðum niðurskurði og uppsögnum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er mótmælt.
„Nú hefur komið í ljós að skurðstofu HSS verður lokað 1. maí næstkomandi vegna niðurskurðarkröfu heilbrigðisráðuneytisins. Einnig verður lögð niður vaktþjónusta heilsugæslulækna um helgar frá og með 1. maí nk. Þá hefur fleira starfsfólki verið sagt upp störfum og allar líkur eru á því að sykursýkismóttöku verði lokað um næstu mánaðamót og starfsfólki sálfélagsþjónustu einnig sagt upp. Fyrirhugað er að loka fyrir rannsóknir sem gerðar eru í nýju tölvusneiðmyndatæki, sem nýlega var tekið í notkun og var gjöf frá Kaupfélagi Suðurnesja.
Því mótmælum við, íbúar Suðurnesja, hver kyns skerðingu á þjónustu sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitir okkur og teljum slíkt ógna okkar lífsgæðum,“ segir á undirskriftalistanum sem fólk er beðið um að skrifa undir.
Undirskriftalistar munu liggja frammi víðsvegar á Suðurnesjum en einnig má skrá sig með ví að smella hér og skrá nafn og kennitölu.