HS Veitur: Rennslismælar í stað hemla – greitt samkvæmt notkun
HS Veitur áætla að setja upp rennslismæla fyrir heitt vatn á heimilum í framtíðinni sem leysa munu hemlana af hólmi. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um tímasetningu, að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra HS Veitna. Heimilin munu þá greiða samkvæmt notkun. Að sögn Júlíusar mun húshitunarkostnaður að meðaltali verða sá sami en hjá einstökum notendum geti hann ýmist hækkað eða lækkað.
HS Veitur auglýstu útboð í síðustu viku þar sem óskað er eftir tilboðum í uppsetningu á rennslismælum fyrir heitt vatn í fyrirtækjum á Suðurnesjum. Skipta á út hemlum í heitavatnsgrindum fyrir mælana. Heildarmagn er um 900 mælar og skal verkinu lokið fyrir 20. desember á þessu ári.
Júlíus segir helstu ástæðuna fyrir þessari breytingu þá að sífellt erfiðara verði að fá hemla sem standist kröfur HS Veitna um nákvæmni og stöðugleika. Mælarnir gefi aukið svigrúm til stjórnunar nýtingar en hætta geti skapast á kostnaði séu húskerfi ekki í góðu lagi og rétt jafnvægisstillt.
„Þar sem settir verða upp mælar verður greitt samkvæmt þeim. Mælar eru þó ekki eitthvað sem er alveg nýtt hjá HS Veitum hf og voru þannig um síðustu áramót 238 mælar í kerfinu á móti 6.715 hemlum. Svæði eins og flugstöðvarsvæðið hafa frá upphafi verið nánast eingöngu með mæla,“ sagði Júlíus.
Sjá nánar í Víkurfréttum á fimmtudaginn