HS Orka vill hærra raforkuverð
Fyrirhugaðar tilraunaboranir og raforkuframleiðsa HS Orku á Reykjanesi og í Krýsuvík hafa tafist þar sem bæjaryfirvöld í Grindavík og Hafnarfirði hafa ekki lokið breytingum á aðalskipulagi fyrir þessi svæði. Þrjár ár eru liðin síðan HS Orka fór fram á breytingu á skipulaginu.
Viðræður HS Orku og Norðuráls um raforkusölu til álvers í Helguvík hafa gengið rólega en upphaflegar forsendur hafa breyst þar sem kostnaður HS Orku hefur hækkað mikið upp á síðkastið og haft áhrif á arðsemiskröfu fyrirtækisins. Af þeim sökum er reynt að semja um hærra raforkuverð.
„Ég vil ekki gefa þessu nafn eða kalla þetta uppnám. Það er verið að reyna að lenda þessu. En málið verður slegið út af borðinu ef engin leyfi fást," segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, í samtali við Fréttablaðið sem fjallar um málið í dag.
Sjá nánar frétt á www.visir.is hér