Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

HS Orka tilkynnir um mögulega sölu á 30% hlut í Bláa Lóninu
Þriðjudagur 16. maí 2017 kl. 13:59

HS Orka tilkynnir um mögulega sölu á 30% hlut í Bláa Lóninu

Í kjölfarið á sýndum áhuga á hlut HS Orku í Bláa Lóninu, tilkynnir félagið að það hyggst kanna mögulega sölu á 30% hlut sínum  í Bláa Lóninu í heild eða að hluta. HS Orka hefur falið Stöplum Advisory að ræða við hugsanlega fjárfesta og stýra ferlinu.
 
„HS Orka hefur verið hluthafi í Bláa Lóninu frá upphafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangsmikinn rekstur, dafnar og er enn í verulegum vexti. Þrátt fyrir að um einstaka eign sé að ræða og þá fellur starfsemi Bláa Lónsins ekki að kjarnastarfsemi HS Orku sem er framleiðsla og sala endurnýjanlegrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku í tilkynningu til Víkurfrétta. 
 
HS Orka á 30% hlut í Bláa Lóninu. Forstjóri HS Orku ásamt stjórnarmanni í HS Orku sitja í stjórn Bláa Lónsins.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024