Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

HS Orka leitar samninga við lánveitendur
Mánudagur 9. nóvember 2009 kl. 11:40

HS Orka leitar samninga við lánveitendur


HS Orka hefur um nokkurt skeið verið í viðræðum við lánveitendur sína þar sem unnið er að því að félaginu verði veittar undanþágur frá lánsfjárkvöðum.  Um síðustu áramót var ljóst að félagið uppfyllti þær ekki lengur í helstu lánasamningum vegna mikils falls krónunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

„Um síðustu áramót varð ljóst að HS Orka hafði brotið lánsfjárkvaðir helstu lánasamninga vegna mikils falls íslensku krónunnar.  Þessa var getið sérstaklega í ársreikningi félagsins og í áritun endurskoðenda.  Nú hefur félagið um nokkurt skeið verið í viðræðum við lánveitendur sína þar sem unnið er að því að félaginu verði veittar undanþágur frá fyrrgreindum lánsfjárkvöðum eða þeim breytt þannig að félagið geti staðið við þær.  Þessar viðræður eru nú á lokastigi en hafa ekki leitt til samkomulags ennþá. líklegt er að það muni gerast bráðlega og mun félagið senda frá sér tilkynningu þess efnis þegar samkomulag hefur náðst,“ segir í tilkynningunni.
---

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.