HS Orka hf semur við lánadrottna
HS Orka hf hefur náð samkomulagi við lánadrottna sína um breytingar á skilmálum erlendra lána eftir að fyrir lá að félagið uppfyllti ekki kröfur um eiginfjárhlutfall og rekstrarhlutföll í kjölfar falls íslensku krónunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.
„Þegar fyrir lá í upphafi þessa árs að HS Orka hf stóð ekki lengur við kröfur í lánasamningum um eiginfjárhlutfall eftir að krónan féll, var þess sérstaklega getið í ársreikningi félagsins og í áritun endurskoðenda. Félagið hóf strax samningaviðræður við erlenda lánveitendur sína, Norræna fjárfestingarbankann (NIB), Evrópska fjárfestingarbankann (EIB) og Evrópska þróunarbankann (CEB). Þessar viðræður hafa leitt það af sér að nú hefur verið undirritað samkomulag við banka félagsins. Samkomulagið felur í meginatriðum í sér að lánveitendur HS Orku hf. auka svigrúm félagsins til frávika frá fjárhagskvöðum ásamt því að samþykkja uppskiptingu Hitaveitu Suðursnesja í HS Orku hf og HS Veitur hf. Þess í stað veitir HS Orka hf. beinar veðtryggingar vegna lána í eignum félagsins, í stað óbeinna veða áður, auk þess sem bankarnir hækka vaxtaálag sitt tímabundið. Þá er staðfest að bankarnir viðurkenna HS Orku hf. sem nýjan skuldara í stað Hitaveitu Suðurnesja hf. í kjölfar uppskiptingar fyrirtækisins,“ segir í tilkynningu HS Orku til Kauphallarinnar.
Sjá nánar hér:
http://www.landsbanki.is/markadir/frettirfrakaupholl/?NewsID=358091