Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

HS Orka tryggir sér 210 milljón dollara fjármögnun
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 27. febrúar 2020 kl. 16:30

HS Orka tryggir sér 210 milljón dollara fjármögnun

- frá evrópskum fjármögnunarfyrirtækjum

HS Orka hefur lokið endurfjármögnun á núverandi skuldum félagsins og tryggt sér allt að 210 milljón dollara lánsfjármögnun (hátt í 27 milljarða kr.) frá leiðandi fjármögnunarfyrirtækjum í Evrópu.

Tilgangur fjármögnunarinnar er að styrkja fyrirtækið í þeirri uppbyggingu sem framundan er, s.s. stækkun Reykjanesvirkjunar sem áformað er að ljúki um mitt ár 2022. Frá þeim breytingum sem urðu á eignarhaldi HS Orku í maí 2019, þegar Jarðvarmi og evrópski innviðafjárfestingarsjóðurinn Ancala Partners eignuðust til jafns allt hlutafé félagsins, hefur verið unnið að því meta mögulega kosti til endurfjármögnunar á eldri lánum og stuðnings vaxtaráformum félagsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Tómas Már Sigurðsson forstjóri: „Það er ánægjuefni fyrir fyrirtækið að ná þessari hagstæðu endurfjármögnun. Mikill áhugi evrópskra fjármögnunarfyrirtækja er viðurkenning á sterkri stöðu fyrirtækisins og framtíðarhorfum þess. Ný fjármögnun mun gera okkur kleift að ýta úr vör spennandi verkefnum sem við höfum verið að vinna að.“

Breska ráðgjafarfyrirtækið DC Advisory leiddi fjármögnunarvinnuna en breska lögfræðistofan Latham & Watkins og íslenska lögfræðistofan LOGOS veittu lögfræðilega ráðgjöf.

HS Orka er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu endurnýjanlegrar orku á Íslandi og rekur Auðlindagarðinn, tvö jarðvarmaorkuver og eina vatnsaflsvirkjun. Kjarnastarfsemi fyrirtækisins er í framleiðslu á raforku og heitu vatni.

Auðlindagarðurinn sem hefur byggst upp í grennd við jarðvarmaorkuver HS Orku á Reykjanesi er einstakur á heimsvísu. Tilgangur hans er að nýta alla afgangsauðlindastrauma fyrirtækisins, með einkennisorðin „samfélag án sóunar“ að markmiði. Starfsemi Auðlindagarðsins byggir á sameiginlegum hagsmunum fyrirtækjanna sem þar starfa og nýta sér þessa strauma, þ.e. fjölnýtingu, nálægðinni við auðlindastrauma og nánu þverfaglegu samstarfi. Með Auðlindagarðinum vill HS Orka vekja fólk til umhugsunar um þær verðmætu auðlindir sem fyrirtækinu hefur verið trúað fyrir og tryggja sjálfbæra nýtingu kynslóð fram af kynslóð.