HS gefur 8 milljónir á 30 ára afmælinu
Í tilefni af 30 ára afmæli Hitaveitu Suðurnesja í dag veitti fyrirtækið 17 fyrirtækjum og félagasamtökum sem vinna að almannaheill á umsvifasvæði HS, höfðinglega styrki.
Styrkirnir eru samtals að verðmæti 8 milljónir króna og þar af eru 6.7 milljónir sem renna til aðila á Suðurnesjum og í Hafnarfirði.
Stjórn Hitaveitu Suðurnesja hf hefur ákveðið að ekki verði um veisluhöld eða sérstakan afmælisfagnað að ræða vegna þessara tímamóta. Þess í stað verði peningagjafir til tækjakaupa og/eða til styrktar á starfsemi viðkomandi aðila látnar nægja auk þess sem um 120 starfsmenn HS fá veglegan kaupauka að upphæð kr. 50.000 útborgaðar með næsta launaseðli.
Þess utan var ákveðið að gefa öllum grunnskólabörnum á svæði HS gjöf síðar í vetur.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hlaut stærsta styrkinn, eða 1 milljón, sem Jón B.G. Jónsson læknir á HSS veitti móttöku. Sagði hann að styrkurinn kæmi sér afar vel þar sem nú væri hægt að leggja út í kaup á augnskolunartæki sem hefur vantað lengi í tækjakost sjúkrahússins.
Auk þess hlutu Dvalarheimili aldraðra Suðurnesjum, Hæfingarstöðin Hafnargötu 90 og Þroskahjálp á Suðurnesjum 750.000 krónur hvert.
Björgunarsveitir á svæðinu fengu 300.000 kr. styrk nema Björgunarsveitin Suðurnes, sem fékk 750.000, enda þjónar hún fleiri íbúum.
Í Hafnarfirði fengu St. Jósepsspítali, Dagvistun minnissjúkra og Björgunarsveit Hafnarfjarðar 500.000 hvert auk þess sem HS veitti 1 milljón til fjögurra Björgunarsveita á Suðurlandi og Skákfélag Vestmannaeyja fékk 300.000.
Sannarlega glæsilegar gjafir og mættu fleiri taka sér slíkt til fyrirmyndar.
VF-mynd/Þorgils Jónsson: Fulltrúar styrkþega ásamt forsvarsmönnum HS