HRYLLILEGT TIL ÞESS AÐ HUGSA AÐ ÞARNA SÉU DÝRAGILDRUR ALLT Í KRING
-segir Guðríður Jóhannesdóttir, móðir drengs sem fór með fingur í minnkagildru. Hún hefur kært málið til lögreglu.„Vill fyrirbyggja að svona lagað geti gerst aftur“Guðríður Jóhannesdóttir, móðir Gunnþórs Mána Kristleifssonar sem slasaði illa á fingri í minkagildru Valdimars hf. í Vogum í síðustu viku, er ekki sátt við forráðamenn Valdimars hf. og hefur kært málið til lögreglunnar í Keflavík . „Tjörnin og svæðið í kringum hana hefur verið leiksvæði Vogabarna í langan tíma og hryllilegt til þess að hugsa að þau séu þarna með dýragildrur allt í kringum sig. Þeir voru þarna fjórir saman, sex ára drengir, og höfðu tveir þeirra handleikið gildruna þegar sonur minn slasaðist. Þá eru minkagildrur ekki meðal þeirra varna sem Fiskistofa krefst í til meindýravarna.“„Mætti lengja rörið“Magnús Ágústsson, forstjóri Valdimars hf., sagðist hafa komið umræddri gildru fyrir. „Ég setti þessa gildru niður á bakvið steyptan vegg. Ofan á hana lét ég fiskikassa og hlóð grjóti ofan á hann. Ég leit eftir gildrunni á sunnudagsmorgun (4. júlí) og þá var hún horfinn. Ég man að ég hugsaði að nú hefðu einhverjir stráklingar stolið henni en ég gerði ekkert frekar í málinu. Ég frétti síðan seinni part dags að piltur hefði farið í gildruna. Fiskistofa skildar okkur til að hafa meindýravarnir en ég man ekki hvort þar eru sérstaklega tilgreindar minkagildrur. Við ráðfærðum okkur við Veiðimálastofnun á Akureyri varðandi ásókn minksins og eru þessar norsku gildrur pantaðar frá Akureyri samkvæmt ábendingu þeirra. Ég er sammála að gera þurfi ráðstafanir til að koma í veg fyrir að svona slys endurtaki sig og tel að það mætti lengja rörið svo enginn nái að koma hendinni þarna inn. Við munum gera þetta við þær gildrur sem við eigum.“„Búið að stela fullt af gildrum frá okkur“Andrés Á. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Valdimars hf., sagði fyrirtækið hafa átt í vandræðum með ýmis konar dót vegna ágangs barna. „Þessi gildra var ekki á þeim stað sem hún átti að vera á og augljóst að einhver hefur tekið hana og flutt þangað. Það er búið að stela fullt af gildrum frá okkur og einnig fá bænum. Það var athugað með þessa gildru daginn áður en þetta gerðist og við getum ekkert gert að því þótt pilturinn hafi meiðst. Við erum búnir að taka inn allar aðrar gildrur. Reglan hefur verið sú að setja gildrurnar ofan í stórgrýti í fjörunni og við höfum farið eftir settum reglum.“Er ekki nauðsynlegt að girða svæðið af eða setja upp skilti sem vara við gildrum, jafnvel myndir af gildrunum?„Ég hef nú ekki séð að fiskvinnsluhús í Keflavík séu girt af og ég held að börnin lesi ekki á skiltin.“ Þarf þá ekki að gera eitthvað átak í kynna að á svæðinu séu dýragildrur?„Jú, og tel ég það vera í verkahring foreldra barnanna að uppfræða og gæta barna sinna.“Á myndum sem VF tóku má sjá þungt farg á bárujárnsplötunum sem gildran reyndist undir. Voru þessar byrðar þarna þegar slysið átti sér stað?„Við settum þetta á í vikunni vegna slæms veðurs.“