Hryðjuverkin kalla ekki á sértækar aðgerðir
Hryðjuverkin í Lundúnum í fyrradag kalla ekki á sértækar öryggisaðgerðir á sviði flugverndar á Keflavíkurflugvelli, að sögn Jóhanns R. Benediktssonar sýslumanns. Hins vegar hljóti atburðurinn að leiða til þess að upplýsingaskipti milli ríkja muni aukast að mun, þetta kemur fram á fréttavef Morgunblaðsins.
"Og afleiðingarnar af voðaverkum sem þessum hljóta að verða þær að stofnanir sem standa í baráttu gegn hryðjuverkum munu fá aukið vægi og fjármagn," segir Jóhann.
Hann minnir á að frá hryðjuverkunum í New York 11. september 2001 hafi orðið gífurlegar breytingar á samskiptum milli leyniþjónusta, lögreglu og annarra aðila sem fást við öryggisgæslu víða um heim. "Þessar miklu breytingar hafa líka orðið í samskiptum milli ríkja," segir hann. "Þá hefur samstarf milli ólíkra deilda og þátta á sviði öryggismála verið eflt mikið til að ná heildstætt utan um hlutina. Slík þróun er stöðugt í gangi og sagan hefur sýnt að menn draga ákveðinn lærdóm af nýjum hryðjuverkum. Venjulega felst sá lærdómur í einhvers konar breytingu í öryggisumhverfinu. Slíkar breytingar þurfa hins vegar ekki að birtast almenningi í hvert sinn. Þótt almenningur verði ekki var við slíkar breytingar á Keflavíkurflugvelli er ekki þar með sagt að það hafi ekki átt sér stað þróun í því hvernig við verndum borgara og stuðlum að bættu öryggi," segir Jóhann.