HRV Engineering rifar seglin: Brýnt að tryggja framgang álvers í Helguvík
HRV Engineering sagði í dag upp 19 starfsmönnum sem flestir störfuðu við hönnun, verkefna- og byggingarstjórnun við álver Norðuráls í Helguvík. Einnig verður hagrætt í almennum rekstri fyrirtækisins. Gripið er til aðgerðanna vegna þeirrar biðstöðu sem nú ríkir varðandi byggingu álversins í Helguvík og samdráttar í öðrum smærri verkefnum fyrirtækisins. Uppsagnirnar koma til framkvæmda innan þriggja mánaða en vonast er til að möguleiki verði á endurráðningum þegar framgangur álversins í Helguvík hefur verið tryggður.
Undanfarna mánuði hafa um 90 verkfræðingar, tæknifræðingar og aðrir sérfræðingar starfað á vegum íslenska þekkingarfyrirtækisins HRV Engineering við byggingu nýs álvers Norðuráls í Helguvík. Fyrirtækið hefur unnið að heildarhönnun, stjórnun og eftirliti með framkvæmdunum. Vegna breyttra aðstæðna stendur nú yfir endurskoðun á öllu verkefninu og mun starfsmönnum HRV sem starfa við verkefnið fækka á meðan. Hluti starfsmanna mun snúa til annarra verkefna innan fyrirtækisins.
Að sögn Kolbeins Björnssonar, forstjóra HRV Engineering, standa vonir til að umsvif fyrirtækisins aukist mjög í Helguvík, þegar framkvæmdir við álverið hefjast af fullum krafti að nýju. Brýnt sé að allir hlutaðeigandi snúi bökum saman um að tryggja álverinu framgang.
HRV Engineering er sérhæft þekkingarfyrirtæki og er í hópi leiðandi aðila í þjónustu við áliðnaðinn í heiminum. Meðal nýlegra verkefna fyrirtækisins má nefna vinnu við stækkun Norðuráls á Grundartanga, endurnýjun á álveri Kubal í Svíþjóð, umhverfismat vegna fyrirhugaðs álvers Alcoa á Bakka, ráðgjöf vegna framleiðsluaukningar hjá Rio Tinto Alcan í Straumsvík, framkvæmdir við álver Norðuráls í Helguvík og almenna verkfræðiráðgjöf við öll íslensku álverin þrjú. HRV Engineering hefur séð um mat á umhverfisáhrifum og hagkvæmniathuganir, unnið að heildarhönnun, stjórnun og eftirliti með verkþáttum vegna nýframkvæmda, stækkana eða breytinga á íslenskum álverum.