Hrottar ákærðir fyrir ofbeldi í Reykjanesbæ
Þrír rúmlega tvítugir menn hafa verið ákærðir fyrir líkamsárásir, hótanir, tilraun til fjárkúgunar og vopnalagabrot. Tveir þeirra, eru ákærðir fyrir að hafa veist að manni í Reykjanesbæ í maí síðastliðnum, þar sem hann var að setja kornabarn inn í bíl. Annar ógnaði honum með hnífi og báðir gengu í skrokk á honum með hnefahöggum og spörkum. Einnig réðust þeir á dóttur mannsins, kýldu hana í andlit, spörkuðu í hana og eiginkonu mannsins sem reyndi að verja hann árásum.
Hótuðu þeir svo manninum hnífstungum og að lokum lífláti ef hann greiddi ekki ætlaða skuld barnabarns síns.
Annar hrottanna er einnig ákærður fyrir innbrot í verslun í Grindavík.
Vísir.is greinir nánar frá þessu, sjá hér.