Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Hrollvekjandi könguló finnst í Reykjanesbæ
Föstudagur 5. september 2008 kl. 11:59

Hrollvekjandi könguló finnst í Reykjanesbæ



Hún var heldur betur hrollvekjandi þessi leggjalanga könguló sem fannst í Reykjanesbæ í morgunsárið. Hún var króuð af úti í horni í verslunarhúsi í bænum og veidd í krukku. Köngulóin fór hratt yfir en var þó yfirbuguð fljótlega eftir að menn komu augum á hana. Talið er að köngulóin hafi komið hingað með vörusendingu frá útlöndum.





Ekki vita menn hvað tegundin heitir og hjá Náttúrustofu Reykjaness stóðu menn ráðþrota yfir því hvaða könguló þetta gæti verið. 200 síðna bók um köngulær í norðanverðri Evrópu veitti engin svör, svo þessi könguló er komin lengra að. Kallaðir verða til færustu sérfræðingar landsins til að greina dýrið.


Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024



Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson


Myndband með köngulónni er komið í Vefsjónvarp Víkurfrétta!