HSS
HSS

Fréttir

Hringtorgið loks væntanlegt
Mánudagur 28. nóvember 2005 kl. 12:00

Hringtorgið loks væntanlegt

Hringtorg á gatnamótum Iðavalla og Aðalgötu í Reykjanesbæ er loks í sjónmáli, en bæjarbúar hafa lengi beðið eftir umbótum við þessi hættulegu gatnamót.

Oft hefur legið nærri stórslysum á þessum gatnamótum þar sem útsýni er af skornum skammti, en bæjaryfirvöld hafa sett framkvæmdina á forgang á næsta ári. Viðar Már Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri umhverfis- og skipulagsráðs, sagði í samtali við Víkurfréttir að framkvæmdir myndu hefjast snemma á nýju ári, eða eftir því sem veður leyfir.
Bílakjarninn
Bílakjarninn