Hrina skjálfta við Grindavík
Jarðskjálftahrina hefur verið við Grindavík í morgun. Þrír að skjálftunum hafa verið stærri en M2 og voru allir á tólfta tímanum.
Frá því klukkan átta í morgun eru skjálftarnir orðnir 30 talsins. Skjálftarnir nú eru ekki eins nálægt bænum og þeir sem mældust í vikunni og vöktu bæjarbúa aðfararnótt miðvikudags.