Hressar stelpur í mötuneytinu við Reykjanesvirkjun
Stelpurnar í mötuneytinu í vinnubúðunum við Reykjanesvirkjun, þær Sólveig Lilja Jóhannsdóttir og Heiða Björg Arnardóttir eru vinsælar hjá strákunum sem vinna við virkjunina. Að sögn vinnumanna er alltaf gott að borða hjá stelpunum en þær eru ekki margar sem starfa við Reykjanesvirkjun. „Það er bara frábært að vinna hérna. Strákarnir hér eru líka svo skemmtilegir,“ sögðu þessar hressu matseljur þegar Víkurfréttir litu við á byggingarsvæði Reykjanesvirkjunar á dögunum.
Myndin: Matseljurnar Sólveig Lilja og Heiða Björg eru hressar í mötuneytinu við Reykjanesvirkjun. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.