Fréttir

Hreinsum Ísland: Strandhreinsunarátaki Landverndar og Bláa hersins hleypt af stokkunum
Hópur á vegum Bláa hersins í hreinsunarverkefni. Mynd úr safni.
Mánudagur 23. apríl 2018 kl. 09:16

Hreinsum Ísland: Strandhreinsunarátaki Landverndar og Bláa hersins hleypt af stokkunum

Landvernd og Blái herinn hleypa strandhreinsunarátakinu Hreinsum Ísland af stokkunum í annað sinn á Degi umhverfisins þann 25. apríl. Dagana 25. apríl -6. maí vekja Landvernd og Blái herinn athygli á þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi. 
 
Landsmenn eru hvattir til að skipuleggja sínar eigin strandhreinsanir og má skrá sig til leiks á hreinsumisland.is en þar má finna góðar leiðbeiningar um hvernig skipuleggja megi hreinsun á árangursríkan hátt, í sátt við menn og náttúru. 
 
Vonumst við til þess að sem flestir leggi hönd á plóg og taki þátt í að minnka plastmengun. Hvetjum við fólk til að nota minna plast, kaupa minna og auka endurvinnslu. 

 
Allir sem skrá sína hreinsun geta fengið hana birta á Íslandskort átaksins!
#hreinsumisland #landvernd #hreinthaf
 
Átakinu verður hleypt af stokkunum við grunnskóla Grindavíkur miðvikudaginn 25. apríl kl. 10. 

Nemendur skólans og leikskólanemendur frá Króki og Laut taka þátt í dagskrárhöldum. Grindavíkurbær mun ásamt öðrum sveitafélögum á Reykjanesi taka þátt í Norrænni strandhreinsun þann 5. maí næstkomandi. 
 
Margir halda því fram að Ísland sé hreinasta land í heimi. Vissulega er loftið hreint og vatnið gott en þrátt fyrir það notar hver Íslendingur að meðaltali 40 kíló af plastumbúðum á ári. Aðeins lítill hluti skilar sér til endurvinnslu eða endurnýtingar og er meiri hluti þess annaðhvort grafinn í jörðu og urðaður eða endar í hafinu. 
 
Plastmengun stærsta áskorun nútímans
 
Plastmengun í hafi er ein stærsta áskorun nútímans í umhverfismálum. Árlega eru 350 milljón tonn af plasti framleidd í heimum en af þeim enda um 8 milljón tonn af plasti í hafinu. Samkvæmt tölum frá Umhverfisstofunun Sameinuðu þjóðanna koma 80% þess plasts af landi og 20% frá starfsemi á sjó. 
 
Plastið eyðist ekki heldur brotnar niður í örplast sem sogar að sér eiturefni í sjónum. Plast getur vafist utan um dýr, heft hreyfingar þeirra og kyrkt en einnig geta eiturefni í plastinu, eða sem berast með plastinu skaðað dýrin. Plast getur þar að auki fyllt meltingafærin svo að dýrin telji sig vera södd en enda á því að hljóta innvortis sár eða svelta til bana.
 
Ógrinni plastagna renna með skólpi og rigningavatni út í sjó og og má meðal annars rekja uppruna þeirra til dekkja, fatnaðar úr gerfiefnum, málningar og snyrtivara. 
 
Heilbrigt haf mönnum lífsnauðsynlegt
 
Landið okkar er umkringt hafi og tengir það okkur við önnur lönd. Það mótar landið okkar og hefur gríðarlega mikil áhrif á loftslag og veður. Hafið gerir jörðina lífvænlega og er tilvera okkar manna háð heilbrigði hafsins. Mikilvægt er fyrir smáa þjóð sem byggir afkomu sína að hluta til á sjávarútvegi að bera skynbragð á víðtæk áhrif hafsins á líf okkar. 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024