Hreiðraði um sig í flugstöðinni í vikutíma - en svo rekin út!
Lögreglan á Suðurnesjum hafði aðfararnótt sunnudagsins sl. afskipti af erlendri konu sem hafði dvalið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í sjö daga. Grunur vaknaði um að konan byggi í flugstöðinni þar sem hún kom daglega í verslun í henni og keypti sér kók og banana.
Í viðtali við lögreglumenn viðurkenndi hún að hafa dvalið í flugstöðinni í ofangreindan tíma. Henni var tjáð að flugstöðin væri ekki ætluð til búsetu og að hún hefði dvalið of lengi á Schengen-svæðinu. Hún framvísaði bandarísku vegabréfi, en þvertók fyrir að halda aftur til síns heima. Niðurstaðan varð sú að hún bókaði miða til Edinborgar og hélt þangað í gærkvöld.