Hraunsvegur 8 Ljósahús Reykjanesbæjar 2003

Aðalgata 1 hlaut viðurkenningu fyrir fallegustu fjölbýlishúsaskreytinguna og Efstaleyti 47 - 55 fyrir fallegustu raðhúsaskreytinguna. Einnig var veitt viðurkenning fyrir sérstakt jólahús og féll hún í hlut Heiðarbrautar 5c. Fallegasti jólaglugginn var valinn hjá Gleraugnaverslun Keflavíkur. Að lokum voru Freyjuvellir valin fallegasta skreytta jólagatan. Hægt er að nálgast kort sem sýnir þau hús sem voru tilnefnd og verðlaunuð í ár á öllum bensínstöðvum og hjá Upplýsingamiðstöð Reykjaness í bókasafninu.