Hraun renni í átt til sjávar að Hraunsvík
Veðurstofan hefur notað hraunflæðilíkan til að meta hvert líklegast er að hraun renni frá mismunandi uppkomustöðum eldgoss. Vanalega er líkanið notað til að meta endanlega útbreiðslu hrauns en síðustu daga hefur líkanið verið notað til að fá vísbendingar um hversu hratt hraun gangi fram á fyrstu klukkustundum mögulegs eldgoss.
„Hér er komið dæmi úr þessum líkankeyrslum þar sem gert er ráð fyrir að magn kviku sem streymi upp um gosop sé stöðugt og að það gjósi á um 2 km langri sprungu. Sprungan er staðsett yfir því svæði þar sem gögn benda til að kvikugangurinn sé staðsettur nú, þ.e. upp af Nátthaga sem er dalur austan við Borgarfjall. Út frá þeim forsendum sem eru gefnar má gera ráð fyrir að syðsti hluti hrauntungunnar sem rennur í átt til sjávar að Hraunsvík, hafi ferðast um tæpan 1 km á fyrstu 6 klukkustundunum,“ segir í færslu á Fésbókarsíðu Veðurstofunnar.