Hraun flæðir að bílastæði við Bláa lónið
Hraun rennur nokkuð hratt í átt að bílastæðinu við Bláa lónið í Svartsengi. Hraunjaðarinn er skammt frá bílastæðinu. Í myndasafni hér að neðan má sjá myndir sem teknar voru í Svartsengi nú á tólfta tímanum.
Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir í færslu á Facebook að mikið framskrið hefur verið á hraunjaðrinum síðasta klukkutímann til vesturs.
Hraunjaðarinn hefur verið að skríða stöðugt fram um nokkra metra á mínútu. Útlit er fyrir að það nái inn á bílastæðið á næsta hálftímanum.
Sjálft Bláa Lónið og húsnæði þess er innan varnargarðanna og því ekki í hættu.
Þarna er hraunið komið um 4 km frá gossprungunni og jaðarinn virðist ekkert vera að hægja á sér.
Myndarleg hrauná liggur beint til vesturs frá gossprungunni og færir hún mikið og stöðugt magn af hrauni að þessu svæði.

 
	
				

 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
												 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				