HSS
HSS

Fréttir

Hraðleið í öryggisleit fyrir farþega WOW air
Þröngt á þingi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Góða skapið var þó ekki langt undan hjá farþegunum. VF-mynd: Sólborg Guðbrandsdóttir
Mánudagur 3. júlí 2017 kl. 11:47

Hraðleið í öryggisleit fyrir farþega WOW air

Frá og með morgundeginum verður viðskiptavinum WOW air boðið upp á hraðleið í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli, en þetta er í fyrsta sinn í sögu Keflavíkurflugvallar sem þessi möguleiki er fyrir hendi. Hraðleiðin verður fyrst um sinn í boði fyrir þá sem bóka WOW Biz pakkann en síðar mun þessi möguleiki standa öðrum til boða. Hraðleiðin er merkt sérstaklega í strikamerki brottfararspjaldsins sem skanna verður við sérstakt öryggishlið hraðleiðarinnar.

Stutt er síðan WOW air kynnti nýjar leiðir í bókunarkerfi sínu en innifalið í verði WOW Biz er fargjald, veski eða fartölvutaska, handfarangur, innritaður farangur, forfallavernd, sætaval (besta sætið sem er í boði hverju sinni), greiðari leið um borð (allir flugvellir), hraðleið í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli og máltíð um borð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn