Hraði er eitur í augum lögreglunnar
Lögreglan á Suðurnesjum stendur nú í umferðarátaki og er fylgst vel með umferð á Reykjanesbraut síðustu daga.
Í gær voru 15 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut.
Þá voru laganna verðir einnig á ferðinni með klippurnar og tóku númeraplötur af óskoðuðum bifreiðum hvar sem til þeirra sást.