Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Hraðhleðslustöð Samkaupa fær frábærar undirtektir
Mánudagur 20. september 2021 kl. 17:17

Hraðhleðslustöð Samkaupa fær frábærar undirtektir

Samkaup opnaði fyrstu rafhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi í byrjun ágúst og hefur framtakið hlotið frábærar undirtektir. „Fleiri hundruð rafbílaeigendur nýttu hraðhleðslustöðina til að hlaða bílana sína fyrsta mánuðinn og flestir til að fullhlaða þá, þar sem þeir voru í sambandi í nærri 30 mínútur,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa. „Miðað við okkar spá um meðalnotkun, þá náðum við 95% af því marki fyrsta mánuðinn!“

Fyrr á árinu gerðu Samkaup samning við Ísorku um að setja upp á rafhleðslustöðvar við verslanir um land allt. Áætlað er að aðrar verslanir Samkaupa muni bjóða upp á hleðslustöðvar á komandi misserum og styttist í uppsetningu næstu fimm stöðva.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Gunnar Egill segist bíða framhaldsins með eftirvæntingu. „Þróunin á þessum markaði er gríðarlega spennandi, en í upphafi þessa árs voru seldir fleiri nýir bílar sem knúnir eru rafmagni en bensíni eða dísilolíu. Við búumst við að þessari þjónustu verði vel tekið af viðskiptavinum okkar um allt land, sem og ferðamönnum, erlendum og innlendum.“

Rafhleðslustöðvar Samkaupa eru 150KW og eru eingöngu hannaðar fyrir rafbíla sem geta hraðhlaðið. Þær verða settar upp við að minnsta kosti helming verslana félagsins en Samkaup rekur rúmlega 60 verslanir víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Nettó, Krambúðin, Kjörbúðin og Iceland.

„Það er mikið ánægjuefni að fá Ísorku í lið með okkur í orkuskiptunum. Við teljum þetta bæði mikilvægan en jafnframt eðlilegan þátt í samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins,“ segir Gunnar Egill. „Við viljum leggja okkar af mörkum til hraðari orkuskipta og hreinni jarðar.“

Ísorka rekur í dag yfir 900 hleðslustöðvar á Íslandi. Um 450 þeirra eru aðgengilegar almenningi, aðrar í fjölbýlum og við fyrirtæki í skertu aðgengi. Notendur Ísorku eru yfir 5.000 og nýta að meðaltali 600 þeirra hleðslustöðvar daglega.