Fréttir

Hraðasekt upp á 240 þúsund krónur
Föstudagur 18. janúar 2019 kl. 10:36

Hraðasekt upp á 240 þúsund krónur

Ökumaður sem ók Reykjanesbraut í vikunni mældist á 163 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Viðurlög við broti af því tagi eru 240 þúsund krónur í sekt, svipting ökuleyfis í þrjá mánuði og þrír punktar í ökuferilsskrá.
 
Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af fleiri ökumönnum vegna hraðaksturs og annarra umferðarlagabrota. Einn þeirra sem mældist á 146 km hraða, einnig á Reykjanesbraut, kvaðst ekki geta framvísað ökuskírteini því hann hefði aldrei öðlast ökuréttindi.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024