HSS
HSS

Fréttir

Hraðaksturinn kostaði nær 100 þúsund krónur
Þriðjudagur 30. maí 2017 kl. 10:16

Hraðaksturinn kostaði nær 100 þúsund krónur

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært tæplega tuttugu ökumenn fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Hann greiddi nær hundrað þúsundum króna, eða 97.500 kr. í sekt. Þá voru nokkrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um vímuefnaakstur og urðu fáeinir uppvísir að vörslu fíkniefna. Loks óku fáeinis sviptir ökuréttindum eða höfðu ekki endurnýjað ökuskírteini.

Bílakjarninn
Bílakjarninn