Fréttir

Hraðaksturinn kostaði 130 þúsund
Mánudagur 9. október 2017 kl. 11:00

Hraðaksturinn kostaði 130 þúsund

Tíu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 150 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þess ökumanns bíður 130.000 króna sekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af nokkrum bifreiðum og einn ökumaður var með alla hjólbarða á nöglum undir bifreið sinni. Loks voru sex ökumenn stöðvaðir vegna gruns um að þeir akstur undir áhrifum áfengis.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024